Disney+ kostar nú aðeins $1 (140 kr.) auka sem ábót á allar Hulu áskriftir!! Nánar
                
                
                
            
    
    
    
    Leiðbeiningar
        
             
            
                    
                
                  
                            
    
                                Leiðbeiningar fyrir að setja upp og horfa á ESPN+ ...
           
                              
                                
                              
                   
                          
                                
                                
ESPN+ yfirlitssíða
            - Apple tæki (AppleTV/iPhone/iPad) með iTunes inneign
- 
                                        Hér er greitt fyrir ESPN+ áskriftina með iTunes inneign.
 
 Setja upp ESPN+ á AppStore/iTunes
 - Til að byrja með þarftu að hafa iTunes / App Store reikninginn þinn stilltan á Bandaríkin og hafa næga iTunes inneign (sem fæst hjá okkur í formi iTunes inneignarkóða) á þeim reikningi til að borga fyrir ESPN+ áskrift; Leiðbeiningar við hvernig eigi að innleysa iTunes inneignarkort.
- Sæktu ESPN appið á AppleTV/iPhone/iPad tækinu þínu frá AppStore. Athugaðu að hafa útgáfu 13 eða nýrra af iOS/tvOS stýrikerfinu
- Opnaðu appið og veldu "Start Free Trial" eða "Sign Up"
- Sláðu inn netfang (þetta þarf ekki að vera sama netfang og Apple ID - þetta er ESPN+ netfangið þitt)
- Sláðu inn lykilorð
- Veldu áskriftarleið
- Smelltu á "Start Watching". Nú ætti ESPN+ aðgangurinn að vera tilbúinn.
 
 Að reynslutímanum liðnum verður áskriftin gjaldfærð af iTunes reikningnum þínum mánaðarlega. Þú getur stjórnað áskriftinni í iTunes Store, undir liðnum Account og Manage Subscriptions.
 Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum ef þú vilt stöðva áskriftina um óákveðinn tíma:
 - Opnaðu iTunes á tölvunni þinni og veldu síðan iTunes Store.
- Smelltu á netfangið þitt ofarlega vinstra megin í iTunes forritinu og veldu Account.
- Sláðu inn lykilorðið þitt í gluggann sem birtist.
- Nú birtist síða með upplýsingum um iTunes aðganginn þinn. Flettu neðst, að liðnum „Subscriptions“ og veldu Manage.
- Hér getur þú gert ESPN+ áskriftina þína óvirka. Ef þú vilt gera hana virka aftur, er það gert á sama stað og hún er gerð óvirk, eða á Apple TV.
 
ESPN+ yfirlitssíða


