Leiðbeiningar

Ertu nýr iTunes notandi?
Ef þú hefur aldrei sótt forrit fyrir iPhone/iPod/iPad eða ert að kaupa inneignarkort í fyrsta skipti, þarft þú að byrja á að búa til nýjan iTunes aðgang í bandarísku iTunes verslunina, en iTunes kortin frá Eplakortum eru aðeins gjaldgeng þar.

Áttu aðgang að iTunes frá öðru landi en Bandaríkjunum?
iTunes kortin frá Eplakortum virka aðeins í iTunes Store USA. Ef þú átt þegar aðgang að iTunes verslun í öðru landi er einfaldast að búa til nýjan iTunes aðgang í bandarísku iTunes verslunina. Það er einfalt mál að nota efni keypt á mismunandi iTunes aðgöngum á sömu tölvunni og einnig á sömu iPhone/iPad/iPod Touch vélinni.

Svona á að innleysa iTunes inneignarkort

Á tölvunni þinni (Mac eða PC):
  1. Opnaðu iTunes á tölvunni þinni og smelltu á iTunes Store.
  2. Gakktu úr skugga um að iTunes aðangurinn þinn sé skráður inn, netfangið þitt ætti að birtast hægra megin ofarlega i iTunes glugganum. Ef ekki, smelltu á Sign in eða netfangið og skráðu inn réttan aðgang.
  3. Ef þú hefur aldrei keypt inneignarkort, skrunaðu að neðsta hluta síðunnar og passaðu að hér sé stillt á US og að bandaríski fáninn sjáist þar.
  4. Smelltu á Redeem
  5. Smelltu á iTunes Gift Cards
  6. Sláðu inn kóðann (eða notaðu Copy - Paste)
  7. Sláðu inn iTunes Store lykilorðið þitt, ef óskað er eftir því.
  8. Njóttu!
Á iPhone, iPad eða iPod Touch:
  1. Veldu inneignarkóðann í póstinum sem við sendum og haltu puttanum niðri þangað til stækkunarglerið birtist.
  2. Veldu Select og veldu kóðann. Ýttu svo á Copy.
  3. Ýttu á Home hnappinn og opnaðu iTunes eða AppStore forritið á tækinu þínu.
  4. Ef þú opnaðir AppStore, ýttu á hnappinn Featured neðst á skjánum (ef þú opnaðir iTunes, ýttu á Music hnappinn neðst á skjánum) og flettu neðst á síðuna sem birtist.
  5. Ýttu á Redeem.
  6. Þrýstu puttanum á textasvæðið og haltu inni þangað til stækkunarglerið kemur upp. Veldu Paste. Veldu svo Redeem.
  7. Sláðu nú inn leyniorðið þitt fyrir iTunes Store (og aðgangsorðið ef þarf) og ýttu á OK.
  8. Nú koma upp skilaboð um að kóðinn þinn hafi verið innleystur og upplýsingar um hversu mikla inneign þú átt.
  9. Njóttu!

Ef þú lendir í einhverjum vandræðum þá vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á info@eplakort.is og við munum aðstoða. Mundu að hafa inneignarkóðann þinn innifalinn í tölvupóstinum.