Spurt & Svarað (FAQ)
Ef þú finnur ekki svör við spurningu þinni hér, þá vinsamlegast sendu okkur línu á info@eplakort.is.
Inneignarkort og iTunes
- Hvernig fæ ég inneignarkortið afhent?
-
Við sendum aðgangskóðann sem er aftan á kortinu og leiðbeiningar um hvernig á að nota hann, með tölvupósti á netfangið sem þú notaðir á PayPal síðunni við kaupin. Þú færð tvo tölvupósta, annar er póstur með inneignarkóðanum og hinn er greiðslukvittunin frá PayPal. Ef þú óskaðir eftir gjafabréfi, færðu einn tölvupóst til viðbótar sem inniheldur gjafabréfið.
- Hversu fljótt fæ ég inneignarkortið?
-
Kóðinn af inneignarkortinu eru venjulega sendur um leið og greiðsla hefur verið heimiluð, eða nokkrum mínútum frá kaupum. Ef þú biður um gjafabréf þá er biðin aðeins lengri. Við ábyrgjumst að senda þér inneignarkóðann innan 7 klukkustunda frá greiðslu. Ef kóðinn berst þér ekki innan þessara tímamarka, athugaðu fyrst „Junk Mail“/„Spam“ möppuna í tölvupóstinum þínum. Sé enginn póstur frá okkur þar, hafðu samband við okkur á info@eplakort.is og við göngum í málið.
- Get ég treyst inneignarkortum frá Eplakort.is?
-
Já, Eplakort.is selur eingöngu löglega kóða frá viðurkenndum söluaðilum í Bandaríkjunum.
- Hvernig get ég notað inneignarkort frá Eplakortum á iTunes aðganginn minn sem er ekki bandarískur?
-
Við mælum með því að þú haldir þeim aðgangi óbreyttum og búir til nýjan aðgang með öðru netfangi að bandarísku iTunes versluninni. iTunes ræður vel við að halda utan um efni sem keypt er með fleiri en einum iTunes aðgangi. Leiðbeiningar um að opna nýjan iTunes aðgang
- Ég er að reyna að búa til nýjan iTunes aðgang. Afhverju er „None“ ekki í boði á listanum yfir kreditkort?
-
Þú þarft að sækja frítt forrit í iTunes Store, til dæmis Hangman eða Google Earth og smella á “Create new account” til þess að geta stofnað aðgang án þess að gefa upp kreditkortanúmer. Hér eru ítarlegar leiðbeiningar um að opna nýjan iTunes aðgang.
- Þarf ég að nota sama netfangið við stofnun iTunes aðgangs og ég notaði á Paypal?
-
Það skiptir engu máli hvaða netfang þú notar þegar þú kaupir kort frá Eplakort fyrir utan að það þarf að vera virkt og að þú hafir aðgang að því til að nálgast inneignarkóðann. Netföngin geta því verið þau sömu eða af sitt af hvoru tagi.
- Getur eitthvað valdið því að iTunes aðgangurinn minn sé gerður óvirkur?
Það er þekkt að aðgangur sé gerður óvirkur ef notaðar hafa verið inneignir sem keyptar hafa verið með stolnu kreditkorti eða illa fengnar á annan hátt. Slík inneignarkort hafa fengist á vefjum á borð við eBay. Oftast kosta slík kort minna en inneignin sem fæst fyrir þau, en vandamálið er að sá sem kaupir kortið og notar það situr uppi með skaðann ef vandamál koma upp. Hafir þú keypt slíka inneign eða ert ekki viss, er ráðlegt að búa til nýjan iTunes aðgang til að nota með nýja kóðanum frá Eplakort.is. Leiðbeiningar um að opna nýjan iTunes aðgang.
Greiðslur
- Hvaða greiðslumáti er í boði á Eplakort.is?
-
Það eru tvær greiðsluleiðir í boði. Þú getur greitt með:
1. Kreditkorti (sem er meðhöndlað af PayPal.com)
2. PayPal aðgangi - Þarf ég að nota bandarískt heimilisfang þegar ég versla á Eplakort.is?
-
Nei. Notaðu þitt rétta heimilisfang þegar þú verslar á Eplakort.is. Heimilisfangið sem PayPal þarf er svokallað „billing address“, sem er heimilisfangið sem kreditkortareikningarnir þínir eru sendir á.
- Þarf ég að nota sama netfang við greiðslu á PayPal og ég nota á iTunes Store?
-
Það skiptir engu máli hvaða netfang þú notar þegar þú kaupir kort frá Eplakort fyrir utan að það þarf að vera virkt og að þú hafir aðgang að því til að nálgast inneignarkóðann. Netföngin geta því verið þau sömu eða af sitt af hvoru tagi.
- Þarf ég nauðsynlega PayPal aðgang til að versla á Eplakort.is?
-
Nei, það að hafa PayPal aðgang er ekki nauðsynlegt, en það er mun fljótlegra, sparar innslátt og veitir aukið öryggi.
- Er betra að búa til og nota PayPal aðgang?
-
Þægindin við að nota PayPal aðgang felast fyrst og fremst í minni innslætti í hvert skipti sem kaup eru gerð. Þegar PayPal aðgangur er notaður, nægir að slá inn notandanafn og lykilorð. Þú þarft ekki að slá inn kortanúmer, nafn, heimilisfang osfrv. PayPal aðganginn má gera enn öruggari með því að fara í gegnum ferlið „PayPal Verified“ sem staðfestir tengsl netfangsins þíns og kreditkortsins og minnkar líkurnar á misnotkun þess til mikilla muna. Leiðbeiningar um að staðfesta PayPal aðgang - PayPal Verified
- Ég borgaði $19.95, af hverju fæ ég bara $15 inneign?
-
Það liggur mikil vinna á bakvið vefsíðu sem þessa og það kostar sitt að halda henni úti. Kostnaðurinn liggur meðal annars í að útvega kortin, eiga lager, halda úti vefsíðunni og veita þá þjónustu sem viðskiptavinir þarfnast.
- Eru kreditkortaupplýsingarnar mínar öruggar?
-
Eplakort nota PayPal, sem er afar öruggur greiðslumiðlari og einn af þeim stærstu í heimi. Þeim er afar umhugað um öryggi. Kortaupplýsingarnar þínar eru meðhöndlaðar af Paypal og berast okkur aldrei.
- Endurgreiðið þið kort?
-
Kort eru ekki endurgreidd. Ef vandamál koma upp með kóða, munum við senda þér annan kóða án auka kostnaðar, svo lengi sem eldri kóðinn hafi ekki verið notaður.
- Af hverju þarf ég að gefa upp símanúmer þegar ég kaupi kort?
-
Við biðjum um símanúmerið þitt til að hafa auka samskiptaleið við þig ef vandamál koma upp, til dæmis ef rangt netfang er gefið upp við kaupin. Við stundum ekki sölumennsku í gegnum síma.
